
Afmæliskylfingur dagsins: Alessandro Tadini – 30. nóvember 2016
Það er Alessandro Tadini sem er afmæliskylfingur dagsins, en hann fæddist 30. nóvember í Borgomanero á Ítalíu 1973 og á því 44 ára afmæli í dag. Tadini gerðist atvinnumaður í golfi 1994. Hann komst á Evróputúrinn 2003, eftir að hafa gert 6 tilraunir til þess að komast í gegn í Q-school. Hann vann sér ekki inn nægilega mikið verðlaunafé á nýliðaári sínu þannig að hann spilaði næsta keppnistímabil á Áskorendamótaröðinni (ens. Challenge Tour). Árið 2004 varð hann í 2. sæti á Challenge Tour þannig að hann komst aftur á Evrópumótaröðina og hélt korti sínu þar til loka árs 2007, þegar hann féll aftur niður í Áskorendamótaröðina. Hann kom sér upp aftur, varð í 7. sæti árið 2008, en náði ekki að vera á topp 120 í Race to Dubai árið 2009, þannig að hann spilaði aftur á Áskorendamótaröðinni 2010.
Tadini hefir sigrað þrívegis á Áskorendamótaröðinni, fyrsta skipti á Costa Rica Open, 2008, í 2. sinn á Oceânico Group Pro-Am Challenge sama ár og svo í Credit Suisse Challenge, árið 2010.
Besta keppnistímabil Tadini til þessa á Evrópumótaröðinni var 2005, þegar hann var í 98. sæti á Order of Merit, en í móti er besti árangurinn T-2 á Aa St. Omer Open, árið 2004.
Tadini komst í gegnum lokaúrtökumót Evrópumótaraðarinnar í Girona 20. nóvember 2014 og spilaði á Evrópumótaröðinni 2015 – náði ekki að halda korti sínu og hefir nú í ár 2016 spilað á Áskorendamótaröð Evrópu, þ.e. spilaði í 6 mótum mótaraðarinnar og er besti árangur hans þar T-24 árangur, sem hann náði í tveimur mótum í október s.l. þ.e. Ras Al Khaimah 2016 Golf Challenge mótinu sem fram fór 29. október s.l. og T-24 árangur í Foshan Open mótinu, sem fram fór 23. október 2016.
Sem stendur 30. nóvember 2017 er Tadini nr. 614 á heimslistanum, sem er upp á við því við árslok 2016 var hann nr. 812.
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Steinunn Fjóla Jónsdóttir, 30. nóvember 1970 (47 ára); Anthony Kang, 30. nóvember 1972 (45 ára); Arnar Halldórsson, f. 30. október 1972 (45 ára); Sigursteinn Ingvar Rúnarsson, f. 30. nóvember 1979 (38 ára); Breanna Elliott, 30. nóvember 1991 (26 ára).
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- febrúar. 23. 2021 | 22:00 Tiger lenti í bílslysi í Genesis GV80
- febrúar. 1. 2021 | 08:00 Evróputúrinn: Casey sigraði á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 31. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Justin Timberlake – 31. janúar 2021
- janúar. 30. 2021 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (5/2021)
- janúar. 30. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Payne Stewart ——- 30. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Erlingur Snær Loftsson – 29. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 14:45 Evróputúrinn: Detry leiðir í hálfleik á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 28. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Þórður Sigurel Arnfinnsson – 28. janúar 2021
- janúar. 28. 2021 | 12:00 Greg Norman selur „húsið“ sitt í Flórída
- janúar. 27. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Bryce Moulder og Mike Hill – 27. janúar 2021
- janúar. 26. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Karine Icher —— 26. janúar 2021
- janúar. 26. 2021 | 07:30 PGA Championship fer fram í Southern Hills 2022 í stað Trump Bedminster
- janúar. 26. 2021 | 06:00 Þjálfarinn Claude Harmon III segir aðskilnaðinn við fv. nemanda sinn Brooks Koepka „hrikalegan“
- janúar. 25. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Heimir Hjartarson, Svandís Thorvalds og Brynja Sigurðardóttir – 25. janúar 2020
- janúar. 25. 2021 | 05:00 Hvað var í sigurpoka Kim?