Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 29. 2022 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Albert Þorkelsson og Dóra Eiríksdóttir – 29. ágúst 2022

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir í dag: Albert Þorkelsson og Dóra Eiríksdóttir.

Albert var fæddur á Siglufirði 29. ágúst 1922 og hefði því orðið 100 ára í dag, en hann lést 12. febrúar 2008. Albert var einn af stofnendum Golfklúbbs Borgarness árið 1973 og sat í fyrstu stjórn hans. Albert og Sigríður, eiginkona hans, voru gerð að heiðursfélögum GB árið 1996. Albert og Sigríði var veitt gullmerki ÍSÍ á 90 ára afmælishátíð UMSB í apríl 2002. Albert náði mjög góðum árangri í golfíþróttinni og var m.a. valinn í landslið öldunga í golfi.

Dóra Eiríksdóttir er fædd 29. ágúst 1952 og fagnar því 70 ára afmæli í dag. Innilega til hamingju með merkisafmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Sigríður Anna Kristinsdóttir, 29. ágúst 1957 (65 ára); Michael Jackson, 29. ágúst 1958 (64 ára); Jónína Kristjánsdóttir, GK, 29. ágúst 1963 (59 ára); Carl Pettersson, 29. ágúst 1977 (45 ára); Anton Rafn Ásmundsson; 29. ágúst 1979 (43 ára); Ég Er Akureyringur, 29. ágúst 1985 (37 ára); Peter Uihlein, 29. ágúst 1989 (33 ára); Aron Atli Bergmann Valtýsson, 29. ágúst 1999 (23 ára); Julia Lekva….. og …..

Golf 1 óskar þeim, sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is