Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 30. 2023 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Ágúst Húbertsson, Sigurður U Sigurðsson og Auður Jónsdóttir – 30. mars 2023

Afmæliskylfingar dagsins eru þrír Ágúst Húbertsson, Sigurður U Sigurðsson og Auður Jónsdóttir

Ágúst Húbertsson þ.e. „Gústi“ fyrrum framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Keilis í Hafnarfirði er fæddur 30. mars 1943 og á því 80 ára merkisafmæli í dag!!! Sjá má eldra viðtal sem Golf 1 tók við afmæliskylfing dagsins, með því að SMELLA HÉR:  Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með merkisafmælið hér að neðan

Ágúst Húbertsson

Ágúst Húbertsson – Innilega til hamingju með 80 ára afmælið!!!

Hinn afmæliskylfingurinn er Sigurður U Sigurðsson. Hann er fæddur 30. mars 1963 og á því 60 ára merkisafmæli í dag. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með merkisafmælið hér að neðan

Sigurður U Sigurðsson – Innilega til hamingju með merkisafmælið!!!

Þriðji afmæliskylfingurinn er Auður Jónsdóttir. Auður er fædd 30. mars 1973 og fagnar því 50 ára stórafmæli í dag. Hún sagði í færslu á facebook í tilefni dagsins að hún væri nú loks að ljúka unglingaveikinni… en kannski ekki. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með stórafmælið hér að neðan

Auður Jónsdóttir. Mynd: Í einkaeigu

Auður Jónsdóttir Innilega til hamingju með stórafmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru: Joseph Paul „Joey“ Sindelar, 30. mars 1958 (65 ára); Jenny Lidback, 30. mars 1963 (60 ára MERKISAFMÆLI!!!); Sigurður U. Sigurðsson, 30. mars 1963 (60 ára); Ólafur Hreinn Jóhannesson, 30. mars 1968 (55 ára); Audur Jonsdottir, 30. mars 1973 (50 ára); Chloe Rogers, 30. mars 1985 (38 ára); Connor Arendell, 30. mars 1990 (33 ára); Sungjae Im, 30. mars 1998 (25 ára stórafmæli – Innilega til hamingju!!!) … og …

Golf 1 óskar afmæliskylfingunum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is