Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 11. 2023 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ágúst Elí Björgvinsson – 11. apríl 2023

Afmæliskylfingur dagsins er Ágúst Elí Björgvinsson. Ágúst Elí er fæddur 11. apríl 1995 og á því 28 ára afmæli í dag. Hann er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði og mikill FH-ingur s.s. hann á ættir til og einn besti markvörður landsins í handboltanum.

Auk krefjandi æfinga í handboltanum hefir Ágúst Elí staðið sig vel í ýmsum opnum mótum í golfinu; var m.a. í vinningssæti á Gamlársdagspúttmóti Hraunkots 31. desember 2008 (3. sæti); 1. sæti á Unglingamótaröð GSÍ , 21. júní 2009; í vinningssæti á Opna Teigsmótinu í Þorlákshafnarvelli 8. maí 2010 (3. sæti + nándarverðlaun á 3. braut); 2. sæti í drengjaflokk (15-16 ára) á Arionbankamótaröð unglinga í Leirunni 5. júní 2011 (eftir bráðabana við Aron Snæ Júlíusson, GKG) á og þá er aðeins fátt eitt talið. Komast má á facebook-síðu afmæliskylfingsins hér fyrir neðan:


Ágúst Elí Björgvinsson (28 ára– Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem afmæli eiga í dag eru: Michael Daly, f. 11. apríl 1952 (71 árs); Gary Orr, 11. apríl 1967 (56 ára); Rakel Garðarsdóttir, 11. apríl 1974 (49 ára); Roland Churchill Thatcher IV, 11. apríl 1977 (46 ára); Camper Iceland, 11. apríl 1977 (46 ára) … og …

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is