
Afmæliskylfingur dagsins: Ágúst Elí Björgvinsson – 11. apríl 2022
Afmæliskylfingur dagsins er Ágúst Elí Björgvinsson. Ágúst Elí er fæddur 11. apríl 1995 og á því 27 ára afmæli í dag. Hann er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði og mikill FH-ingur s.s. hann á ættir til og einn besti markvörður landsins í handboltanum.
Auk krefjandi æfinga í handboltanum hefir Ágúst Elí staðið sig vel í ýmsum opnum mótum í golfinu; var m.a. í vinningssæti á Gamlársdagspúttmóti Hraunkots 31. desember 2008 (3. sæti); 1. sæti á Unglingamótaröð GSÍ , 21. júní 2009; í vinningssæti á Opna Teigsmótinu í Þorlákshafnarvelli 8. maí 2010 (3. sæti + nándarverðlaun á 3. braut); 2. sæti í drengjaflokk (15-16 ára) á Arionbankamótaröð unglinga í Leirunni 5. júní 2011 (eftir bráðabana við Aron Snæ Júlíusson, GKG) á og þá er aðeins fátt eitt talið. Komast má á facebook-síðu afmæliskylfingsins hér fyrir neðan:
Ágúst Elí Björgvinsson (27 ára– Innilega til hamingju með afmælið!!!)
Aðrir frægir kylfingar sem afmæli eiga í dag eru: Michael Daly, f. 11. apríl 1952 (70 ára MERKISAFMÆLI!!!); Gary Orr, 11. apríl 1967 (55 ára); Rakel Garðarsdóttir, 11. apríl 1974 (48 ára); Roland Churchill Thatcher IV, 11. apríl 1977 (45 ára); Camper Iceland, 11. apríl 1977 (45 ára) … og …
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- maí. 11. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hólmfríður Lillý Ómarsdóttir – 11. maí 2022
- maí. 10. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Gunnar Jóhannsson og Mike Souchak – 10. maí 2022
- maí. 9. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingibjörg Sunna Friðriksdóttir – 9. maí 2022
- maí. 8. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jens Gud ———-– 8. maí 2022
- maí. 8. 2022 | 01:00 PGA: Keegan Bradley efstur f. lokahring Wells Fargo
- maí. 8. 2022 | 00:01 LET: Ana Pelaez í forystu f. lokahring Madrid Open
- maí. 7. 2022 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (19/2022)
- maí. 7. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Brenden Pappas – 7. maí 2022
- maí. 7. 2022 | 12:30 Norman neitað um undanþágu til að spila á Opna breska
- maí. 7. 2022 | 06:45 PGA: Day leiðir e. 2. dag Wells Fargo
- maí. 7. 2022 | 06:00 LET: Koivisto efst e. 2. dag Madrid Open
- maí. 6. 2022 | 23:00 NGL: Bjarki bestur íslensku kylfinganna á Barncancerfonden Open
- maí. 6. 2022 | 22:00 Evróputúrinn: Long í forystu e. 2. dag á The Belfry
- maí. 6. 2022 | 18:00 Bandaríska háskólagolfið: Ragnhildur Kristins íþróttakona ársins hjá EKU
- maí. 6. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Dean Larsson – 6. maí 2022