Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 29. 2023 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Aditi Ashok ——– 29. mars 2023

Afmæliskylfingur dagsins er indverski kylfingurinn Aditi Ashok, en hún er fædd 29. mars 1998 og á því 25 ára stórafmæli í dag!!! Aditi byrjaði að pila golf 5 ára, en í dag spilar hún á bandarísku LPGA mótaröðinni, sem og evrópsku LET. Aditi gerðist atvinnumaður í golfi 2016. Á ferli sínum hefir hún sigrað 6 sinnum, þar af 4 sinnum á LET. Eins hefir hún verið fulltrúi Indlands á Olympíuleikunum tvívegis 2016 og 2020, en í seinna skiptið hafnaði hún í 4. sæti.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Ernest Joseph (E. J.) „Dutch“ Harrison f. 29. mars 1910 – 19. júní 1982; Toggi Bjöss, 29. mars 1944 (79 ára); Sue Fogleman, 29. mars 1956 (67 ára) spilaði á LPGA; Gunnar Páll Þórisson GKG, 29. mars 1961 (62 ára); Kirk Allan Triplett, 29. mars 1962 (61 árs); Lori Atsedes, 29. mars 1964 (59 ára); Ingimar Kr Jónsson, 29. mars 1970 (53 ára); Gudrun Þórs, 29. mars 1972 (51 árs); Gerina Piller, 29. mars 1985 (38 ára)  …. og ….

Golf 1 óskar öllum kylfingum, sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is