Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 16. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Adam Scott ———- 16. júlí 2015

Afmæliskylfingur dagsins er einn vinsælasti kylfingur a.m.k. meðal kvenþjóðarinnar – maður sem hvað eftir annað hefir verið valinn kynþokkafyllsti kylfingur allra tíma… og sem er þar að auki líka góður kylfingur: Masters risamótsmeistari ársins 2013… ástralski kylfingurinn Adam Derek Scott.

Adam fæddist Adelaide í Ástralíu, 16. júlí 1980 og er því 35 ára í dag. Hann býr í Crans-Montana í Sviss. Adam gerðist atvinnumaður í golfi árið 2000 og hefir á ferli sínum sigrað 21 sinnum, þ.á.m. 9 sinnum á evrópsku mótaröðinni og 9 sinnum á PGA. Honum tókst loks í ár að rjúfa álögin sem hvílt hafa á áströlskum kylfingum á Masters risamótinu 2013 og VANN!!! Adam er eflaust líka einn þeirra sem lítur löngunaraugum á Claret Jug, en Opna breska, risamót allra risamóta hófst einmitt í dag. Besti árangur hans á Opna breska fyrir þann tíma var 2. sætið á Royal Lytham & St. Annes 2012, þar sem hann glutraði niður sigrinum á síðustu honum s.s. öllum er eflaust í fersku minni. Adam Scott er núverandi nr. 11 á heimslistanum.

Þess mætti í lokin geta þess að á þessum degi fyrir 4 árum birtust fréttir Golf 1 í fyrsta skiptið á Facebook – Golf 1 golffréttavefurinn opnaði þó ekki formlega fyrr en 2 1/2 mánuði síðar þ.e. 25. september 2011.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Anna Sigríður Pálsdóttir, 16. júlí 1947 (68 ára); Tom Gillis, 16. júlí 1968 (47 ára); Rodney Fletcher, 16. júlí 1968 (47 ára);  Stuart Cage, 16. júlí 1973 (42 ára); Bjarni Magnússon, 16. júlí 1976 (39 ára); Ólafur Sigurjónsson, 16. júlí 1977 (38 ára) Thomas Edward Aiken, 16. júlí 1983 (32 ára); Kim Joo-Mi (kóreanska 김주미 ) 16. júlí 1984 (35 ára); Anton Ingi ArnarssonSóley Ragnarsdóttir, Guðmundur Einarsson, GSG .… og …. Íris Hera

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is