
Afmæliskylfingur dagsins: Adam Scott ——- 16. júlí 2013
Afmæliskylfingur dagsins er einn vinsælasti kylfingur a.m.k. meðal kvenþjóðarinnar – maður sem hvað eftir annað hefir verið valinn kynþokkafyllsti kylfingur allra tíma… og sem er þar að auki líka góður kylfingur: Masters risamótsmeistari ársins 2013… ástralski kylfingurinn Adam Derek Scott.
Adam fæddist Adelaide í Ástralíu, 16. júlí 1980 og er því 33 ára í dag. Hann býr í Crans-Montana í Sviss. Adam gerðist atvinnumaður í golfi árið 2000 og hefir á ferli sínum sigrað 21 sinnum, þ.á.m. 9 sinnum á evrópsku mótaröðinni og 9 sinnum á PGA. Honum tókst loks í ár að rjúfa álögin sem hvílt hafa á áströlskum kylfingum á Masters risamótinu og VANN!!! Adam er eflaust líka einn þeirra sem lítur löngunaraugum á Claret Jug, en Opna breska, risamót allra risamóta hefst n.k. fimmtudag. Besti árangur hans á Opna breska er 2. sætið á Royal Lytham & St. Annes 2012, þar sem hann glutraði niður sigrinum á síðustu honum s.s. öllum er eflaust í fersku minni. Besti árangur Scott á heimslistanum er hins vegar 3. sætið. Í þessari viku er Adam Scott í 4. sæti, en sigurvegari Opna bandaríska 2013, Justin Rose skaust upp fyrir hann í 3. sætið.
Þess mætti í lokin geta þess að á þessum degi fyrir 2 árum birtust fréttir Golf 1 í fyrsta skiptið á Facebook – Golf 1 golffréttavefurinn opnaði þó ekki formlega fyrr en 2 1/2 mánuði síðar þ.e. 25. september 2011.
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Stuart Cage, 16. júlí 1973 (40 ára stórafmæli!!!); Thomas Edward Aiken, 16. júlí 1983 (30 ára stórafmæli) …… og …….





Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- júlí. 4. 2022 | 22:00 GÖ: Ásgerður og Þórir Baldvin klúbbmeistarar 2022
- júlí. 4. 2022 | 20:00 Sigmar Arnar fór holu í höggi!
- júlí. 4. 2022 | 18:00 PGA: Poston sigraði á John Deere Classic
- júlí. 4. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Stefán Garðarsson – 4. júlí 2022
- júlí. 4. 2022 | 14:00 Haraldur og Kristjana eignuðust stúlku!
- júlí. 3. 2022 | 18:00 Evróputúrinn: Adrian Meronk skrifaði sig í golfsögubækurnar – fyrsti pólski sigurvegarinn á Evróputúrnum!!!
- júlí. 3. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Baldvin Örn Berndsen – 3. júlí 2022
- júlí. 3. 2022 | 15:00 GB: Hansína og Bjarki klúbbmeistarar 2022
- júlí. 3. 2022 | 13:00 LET: Guðrún Brá komst ekki g. niðurskurð á Amundi German Masters – Maja Stark sigraði
- júlí. 3. 2022 | 12:00 GVS: Heiður Björk og Helgi Runólfs klúbbmeistarar 2022
- júlí. 3. 2022 | 10:00 GSS: Una Karen sigraði á Kvennamótinu!
- júlí. 3. 2022 | 07:00 NGL: Andri Þór lauk keppni á PGA Championship Landeryd Masters
- júlí. 3. 2022 | 00:34 LIV: Branden Grace sigraði á 2. móti arabísku ofurgolfmótaraðarinnar á Pumpkin Ridge!
- júlí. 2. 2022 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (27/2022)
- júlí. 2. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Gunnar Þór Sigurjónsson – 2. júlí 2022