
Afmæliskylfingur dagsins: Jesper Parnevik – 7. mars 2012
Það er Jesper Parnevik sem er afmæliskylfingur dagsins, en Jesper fæddist í Botkyrka, í Svíþjóð 7. mars 1965 og er því 47 ára í dag. Hann er sonur sænska skemmtikraftsins Bo Parnevik. Jesper gerðist atvinnukylfingur 1986 og hefir á ferli sínum sigrað 14 sinnum m.a. 5 sinnum á PGA og 4 sinnum á Evróputúrnum. Hann er kannski einna þekktastur fyrir að kynna Tiger fyrir sænsku barnapíu sinni, Elínu Nordegren, sem Tiger síðan kvæntist og eignaðist 2 börn með: Charlie og Sam.
Eins er Jesper þekktur fyrir óvenjulegan fatastíl og höfuðföt sín sem hann er með úti á velli. Jesper býr í dag á Jupiter Island, í Flórída líkt og Tiger. Jesper var 38 vikur á topp-10 á heimslistanum á árunum 2000-2001 og besti árangur hans þar er 7. sætið.
Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru: Homero Blancas, Jr., 7. mars 1938 (74 ára); Tom Lehman, 7. mars 1959 (53 ára); Alena Sharp, 7. mars 1981 (31 árs).
-
Golf 1 óskar öllum kylfingum, sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- janúar. 28. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (4/2023)
- janúar. 27. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Bryce Moulder og Mike Hill – 27. janúar 2023
- janúar. 26. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bjarni Benediktsson – 26. janúar 2023
- janúar. 25. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sjöfn Har, Heimir Hjartarson, Svandís Thorvalds og Brynja Sigurðardóttir – 25. janúar 2023
- janúar. 24. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingunn Einarsdóttir – 24. janúar 2023
- janúar. 23. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Yani Tseng ———– 23. janúar 2023
- janúar. 23. 2023 | 06:00 PGA: Xander Schauffele með fyrsta albatrossinn á ferlinum á AmEx Open
- janúar. 23. 2023 | 05:15 Hvað var í sigurpoka Brooke Henderson?
- janúar. 23. 2023 | 05:00 PGA: Rahm rúllaði upp AmEx Open
- janúar. 22. 2023 | 22:40 Champions: Stricker sigraði í Hawaii
- janúar. 22. 2023 | 22:30 LPGA: Sigur Brooke Henderson öruggur á Hilton Grand Vacations TOC!!!
- janúar. 22. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Sigurbjörn Sigfússon og Unnur Ólöf Halldórsdóttir – 22. janúar 2023
- janúar. 22. 2023 | 14:45 Evróputúrinn: Victor Perez sigraði á Abu Dhabi HSBC meistaramótinu
- janúar. 21. 2023 | 23:59 LPGA: Brooke Henderson leiðir á Hilton Grand Vacations TOC f. lokahringinn
- janúar. 21. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (3/2023)