Afmæliskylfingur dagsins: Halldór X Halldórsson – 5. apríl 2012
Það er Halldór X Halldórsson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Halldór er fæddur 5. apríl 1976 og er því 36 ára í dag. Hann á sama afmælisdag og sænski kylfingurinn Henrik Stenson, nákvæmlega upp á ár!
Halldór X er frá Sauðárkróki og byrjaði í golfi 1987. Hann er í Golfklúbbi Kiðjabergs, GKB og með 2,3 í forgjöf. Halldór var mjög sigursæll í opnum mótum s.l. sumar, sigraði m.a. á Opna Carlsberg mótinu 30. júlí 2011 á Svarfhólsvelli á Selfossi (71 högg); Opna Golfbúðarmótinu á Svarfhólsvelli á Selfossi, 27. ágúst 2011 (71 högg) og Opna Vetrarmótinu í Leirunni 19. nóvember 2011 (70 högg) og þá er aðeins fátt eitt talið af nýlegri afrekum Halldórs. Besta skor hans er 69 í Leirunni.
Halldór á eina dóttur, Guðrúnu Ernu, 10 ára, sem er að byrja í golfi.
Komast má á Facebook síðu Halldórs X til þess að óska afmæliskylfingnum til hamingju með daginn hér fyrir neðan:
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Lady Margaret Rachel Scott, f. 5. april 1874 – d. 27. janúar 1938); Henrik Stenson, 5. apríl 1976 (36 ára) Brendan Steele, 5. apríl 1983 (29 ára) – leiddi m.a. á PGA Championship 2011 fyrir lokadaginn…. og …..
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- janúar. 28. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (4/2023)
- janúar. 27. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Bryce Moulder og Mike Hill – 27. janúar 2023
- janúar. 26. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bjarni Benediktsson – 26. janúar 2023
- janúar. 25. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sjöfn Har, Heimir Hjartarson, Svandís Thorvalds og Brynja Sigurðardóttir – 25. janúar 2023
- janúar. 24. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingunn Einarsdóttir – 24. janúar 2023
- janúar. 23. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Yani Tseng ———– 23. janúar 2023
- janúar. 23. 2023 | 06:00 PGA: Xander Schauffele með fyrsta albatrossinn á ferlinum á AmEx Open
- janúar. 23. 2023 | 05:15 Hvað var í sigurpoka Brooke Henderson?
- janúar. 23. 2023 | 05:00 PGA: Rahm rúllaði upp AmEx Open
- janúar. 22. 2023 | 22:40 Champions: Stricker sigraði í Hawaii
- janúar. 22. 2023 | 22:30 LPGA: Sigur Brooke Henderson öruggur á Hilton Grand Vacations TOC!!!
- janúar. 22. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Sigurbjörn Sigfússon og Unnur Ólöf Halldórsdóttir – 22. janúar 2023
- janúar. 22. 2023 | 14:45 Evróputúrinn: Victor Perez sigraði á Abu Dhabi HSBC meistaramótinu
- janúar. 21. 2023 | 23:59 LPGA: Brooke Henderson leiðir á Hilton Grand Vacations TOC f. lokahringinn
- janúar. 21. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (3/2023)