Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 30. 2012 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Payne Stewart – 30. janúar 2012

Það er Payne Stewart, sem er afmæliskylfingur dagsins. Payne fæddist í dag 30. janúar 1955 í Springfield, Missouri og hefði orðið 55 ára í dag. Payne lést í flugslysi 25. október 1999, aðeins 42 ára að aldri. Hann vann 24 sinnum á atvinnumannsferli sínum, þar af 11 sinnum á PGA Tour og þar af 3 sinnum á risamótum: 2 sinnum á Opna bandaríska 1991 og 1999 og PGA Championship 1999. Payne var þekktur fyrir mjög sérstakan klæðaburð á golfvellinum

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Curtis Strange, 30. janúar 1955 (57 ára);  Digvijay Singh, 30. janúar 1972 (40 ára stórafmæli!);  Jill McGill, 30. janúar 1972 (40 ára stórafmæli) og…

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is