Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 27. 2012 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Friðmey Jónsdóttir – 27. apríl 2012

Það er Friðmey Jónsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Friðmey er fædd 27. apríl 1987 og því 25 ára í dag! Friðmey er í Golfklúbbnum Leyni (GL) á Akranesi. Hún er frábær kylfingur, hefir m.a. orðið klúbbmeistari GL 2006 og 2010.

Friðmey Jónsdóttir ásamt Helga Dan Steinssyni þegar þau urðu klúbbmeistarar GL 2006. Mynd Skessuhorn

Friðmey er af mikilli golffjölskyldu af Skaganum, en hún er eldri systir Valdísar Þóru Jónsdóttur, sem er einn besti kvenkylfingur Íslands og á auk þess 2 bræður, foreldra, afa og ömmu og jafnvel bræður mömmu hennar og einn bróðir pabba hennar spila  öll golf.

Hér að neðan má komast á Facebooksíðu afmæliskylfingsins, til þess að óska honum til hamingju með afmælið.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Warren Kenneth Wood, 27. apríl 1887 – d. 27. október 1926;  Leo Diegel, 27. apríl 1899 – d. 8. maí 1951;  David K. Oakley, 27. apríl 1945 – d. 2. júlí 2006;  Gaganjeet Bhullar  27. april 1988  (24 ára); Andrea Pavan 27. apríl 1989 (23 ára)   ….. og …..