
Afmæliskylfingur dagsins: Art Wall – 25. nóvember 2012
Arthur Jonathan Wall, Jr., alltaf kallaður Art Wall fæddist 25. nóvember 1923 í Honesdale, Pennsylvaníu. Hann stundaði nám við Duke University og útskrifaðist 1949 sem viðskiptafræðingur. Á atvinnumannsferli sínum vann hann 24 sinnum, þar af 14 sinnum á PGA. Af 14 titlum sínum á PGA vann hann 4 árið 1959, en það ár var hann valinn leikmaður ársins á PGA og hlaut Vardon Trophy fyrir lægsta meðaltalsskor. Eins var hann efstur á peningalistanum það ár með verðlaunafé upp á $53,167.50 sem er eitthvað í kringum $360.000,- uppreiknað á gengi dagsins í dag.
Art Wall
Hápunktur ferils Arts á PGA var þegar hann sigraði 1959 á Masters. Á lokahringnum fékk hann 5 fugla á síðustu 6 holunum og kom í hús á 66 höggum og sigraði þar með Cary Middlecoff og þann sem átti titil að verja, Arnold Palmer.
Art Wall var í Ryderbikarsliði Bandaríkjanna árin : 1957, 1959, og 1961.
Art Wall er líka þekktur fyrir að hafa 45 sinnum farið holu í höggi (þ.m.t. á æfingahringjum), sem var heimsmet í mörg ár.
Art Wall dó í Scranton, Pennsylvaníu eftir langvarandi veikindi 31. október 2001.
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Amelia Rorer, 25. nóvember 1952; Nolan Jay Henke, 25. nóvember 1964 og Jóhann Adolf Oddgeirsson, 25. nóvember 1973.
Golf 1 óskar öllum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- mars. 26. 2023 | 23:24 PGA: Sam Burns sigraði í WGC-Dell holukeppninni
- mars. 21. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Stewart Cink ——– 21. mars 2023
- mars. 21. 2023 | 15:00 Next Golf Tour: Sigurður Arnar sigraði á Adare Manor!!!
- mars. 20. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Arjun Atwal ——– 20. mars 2023
- mars. 20. 2023 | 08:45 Champions: Ernie Els sigraði á Hoag Classic
- mars. 20. 2023 | 08:00 LIV: Danny Lee sigraði í LIV Golf – Tucson
- mars. 19. 2023 | 22:30 PGA: Taylor Moore sigraði á Valspar
- mars. 19. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Kristín Bachmann – 19. mars 2023
- mars. 19. 2023 | 14:00 PGA: Adam Schenk leiðir f. lokahring Valspar m/Fleetwood og Spieth á hælunum
- mars. 18. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (11/2023)
- mars. 18. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bragi Brynjarsson og Marousa Polias – 18. mars 2023
- mars. 18. 2023 | 15:00 LET: Pauline Roussin-Bouchard sigraði í einstaklingskeppni Aramco Team Series – Singapore
- mars. 17. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Tumi Hrafn Kúld – 17. mars 2023
- mars. 16. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Vincent Tshabalala og Guðný Ævarsdóttir – 16. mars 2023
- mars. 15. 2023 | 18:00 Evróputúrinn: Jorge Campillo sigraði á Magical Kenya Open