Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 21. 2012 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Lúðvík Geirsson – 21. apríl 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Lúðvík Geirsson, fv. bæjarstjóri í Hafnarfirði. Hann er fæddur 21. apríl 1959 og því 53 ára í dag. Lúðvík er í Golfklúbbnum Keili og hefir  spilað golf frá því hann var smástrákur.  Sem strákur átti hann (og á eflaust enn) fínt golfsett, sem heill hópur af frábærum kylfingum naut góðs af þegar þeir voru að stíga sín fyrstu spor í golfinu, m.a Þórdís Geirs, margfaldur Íslandsmeistari, systir hans, sem laumaðist í settið hjá eldri bróður sínum, þegar hún var að byrja.
Lúðvík er kvæntur Hönnu Björk Lárusdóttur og á 3 syni:  Lárus, f. 1984, Brynjar Hans f. 1989 og Guðlaug Bjarka f. 1996.
Komast má á Facebooksíðu afmæliskylfingsins hér til þess að óska honum til hamingju:
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Michael Jonzon, 21. apríl 1972 (40 ára stórafmæli!!!);  Virada Nirapathpongporn, 21. apríl 1982 (30 ára stórafmæli!!!);  Beatriz Recari, 21. apríl 1987 (25 ára stórafmæli!!!) og Hafliði Már Brynjarsson, 21. apríl 1993 (19 ára), GS … og ….

Bogi Ísak Bogason, GR (17 ára)
Gassi Olafsson (35 ára)

lögreglumaður.

 

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is