Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 18. 2013 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Valgarður M. Pétursson – 18. nóvember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Valgarður M. Pétursson. Valgarður er fæddur 18. nóvember 1963 og á því 50 ára stórafmæli í dag!!!  Valgarður er í Golfklúbbi Suðurnesja (GS) og hefir verið duglegur að taka þátt í opnum mótum.  T.a.m. spilaði hann í Marsmóti GSG nú í ár og stóð sig vel! Valgarður er með 16,7 í forgjöf.

Innilega til hamingju með daginn!!!

Valgarður – Innilega til hamingju með daginn!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Marga Stubblefield, 18. nóvember 1951 (62 ára); Jill Briles-Hinton, 18. nóvember 1962 (51 árs); Sandra Carlborg, 18. nóvember 1983 (30 ára stórafmæli!!! sænsk – spilar á LET)  ….. og …..

 
Josef Olasson (52 ára)

Golf 1 óskar öllum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is