Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 7. 2013 | 18:00

Afmæliskylfingur dagsins: Steingrímur Walterson – 7. júní 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Steingrímur Walterson. Steingrímur fæddist 7. júní 1971 og er því 42 ára í dag. Steingrímur er félagi í Golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ.

Steingrímur er kvæntur Elínu Rósu Finnbogadóttur og eiga þau tvö börn.

Komast  má á facebooksíðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér fyrir neðan

Aðrir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Terry Gale, 7. júní 1946 (67 ára); Steven David Rintoul, 7. júní 1963 (50 ára stórafmæli!!!); Hilary Lunke, 7. júní 1979 (34 ára); Keegan Bradley, 7. júní 1986 (27 ára)  ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is