
Afmæliskylfingur dagsins: Don Bies – 10. desember 2012
Það er Don Bies, sem er afmæliskylfingur dagsins en hann fæddist í Cottonwood, Idaho 10. desember 1937 og á því 75 ára stórafmæli í dag. Bies gerðist atvinnumaður í golfi árið 1957 og hefir spilað bæði á PGA og Senior PGA Tour, sem nú heitir Champions Tour. Bies sigraði 1 sinni á PGA, en það var árið 1975 þegar hann vann Sammy Davis Jr. – Greater Hartford Open. Jafnframt er hann sjöfaldur ríkismeistari Washington State PGA Championship. Besti árangur hans á risamóti var þegar hann deildi 5. sætinu 1968 á Opna bandaríska. Bies spilaði á PGA til ársins 1980.
Eftir að hann varð 50 ára, í lok árs 1987, spilaði hann á Senior PGA Tour. Þar vann hann í alls 7 skipti, m.a. risamót öldungamótaraðarinnar The Tradition at Desert Mountain, árið 1989. Á atvinnumannsferli sínum hefir Bies náð að sigra 19 sinnum.
Bies var kjörinn í fræðgarhöll Pacific Northwest PGA árið 1994. Hann býr í Seattle ásamt eiginkonu sinni til meira en 50 ára, Marylin. Þau eiga 3 uppkomin börn: Karen, Marcy og David og 8 barnabörn.
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- mars. 31. 2023 | 16:30 Gary Player þarf að „grátbiðja“ til að fá að spila á Augusta National
- mars. 26. 2023 | 23:24 PGA: Sam Burns sigraði í WGC-Dell holukeppninni
- mars. 23. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Kristín Sigurbergsdóttir – 23. mars 2023
- mars. 22. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Peter McEvoy og Davíð Arthur Friðriksson – 22. mars 2023
- mars. 21. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Stewart Cink ——– 21. mars 2023
- mars. 21. 2023 | 15:00 Next Golf Tour: Sigurður Arnar sigraði á Adare Manor!!!
- mars. 20. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Arjun Atwal ——– 20. mars 2023
- mars. 20. 2023 | 08:45 Champions: Ernie Els sigraði á Hoag Classic
- mars. 20. 2023 | 08:00 LIV: Danny Lee sigraði í LIV Golf – Tucson
- mars. 19. 2023 | 22:30 PGA: Taylor Moore sigraði á Valspar
- mars. 19. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Kristín Bachmann – 19. mars 2023
- mars. 19. 2023 | 14:00 PGA: Adam Schenk leiðir f. lokahring Valspar m/Fleetwood og Spieth á hælunum
- mars. 18. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (11/2023)
- mars. 18. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bragi Brynjarsson og Marousa Polias – 18. mars 2023
- mars. 18. 2023 | 15:00 LET: Pauline Roussin-Bouchard sigraði í einstaklingskeppni Aramco Team Series – Singapore