Ragnheiður Jónsdóttir | september. 28. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagins: Perla Sól Sigurbrandsdóttir – 28. september 2018

Það er Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, sem er afmæliskylfingur dagsins. Perla Sól er fædd 28. september 2006 og á því 12 ára afmæli í dag. Hún er m.a. Íslandsmeistari í flokki 14 ára og yngri telpna á Íslandsbankamótaröðinni 2018 og hefir m.a. spilað á Eimskipsmótaröðinni í sumar, út í Eyjum, þar sem hún var yngsti keppandinn eða 11 ára. Perla Sól sagði í nýlegu viðtali að það hefði verið bróðir hennar, Dagbjartur, sem hefði dregið sig í golfið.

Aðrir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Margaret „Wiffi“ Smith 28. september 1936 (82 ára); Ragnhildur Jónsdóttir, GK, 28. september 1940 (78 ára); Giuseppe Calì, 28. september 1952 (66 ára); Sigurjón Harðarson, 28. september 1952 (66 ára); Gustavo Rojas, 28. september 1967 (51 árs); Se Ri Pak, 28. september 1977 (41 árs); Kenneth Ferrie, 28. september 1978 (40 ára STÓRAFMÆLI!!!); Jane Turner, 28. september 1989 (29 ára) – skosk spilar á LET Access;  ….. og ….. Óliver Leó Óliversson og Sandy Crutchfield Daly

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is

Aðalmyndagluggi: Afmæliskylfingur Golf1.is 28. september 2018, Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR. Mynd: GSÍ