Heiða Guðnadóttir, klúbbmeistari GKJ 2012, ásamt kaddý Davíð Gunnlaugssyni, sem varð í 3. sæti í karlaflokki á meistaramótinu. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 11. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagins: Heiða Guðna og Michelle Wie – 11. október 2014

Afmæliskylfingar dagsins eru Heiða Guðnadóttir og Michelle Wie. Báðar eru þær jafngamlar fæddar sama dag og sama ár 11. október 1989 og því báðar 25 ára í dag. Heiða er klúbbmeistari GKJ 2012 og Michelle Wie spilar á LPGA og hefir átt ágætis ár í ár, 2014; en hún byrjaði vel í ár þegar hún vann 3. sigur sinn á LPGA Lotte Championship á heimavelli í Hawaii.  Einn sigraði Wie á fyrsta risamóti sínu, þ.e. US Women´s Open þann 22. júní s.l.

Komast má á heimasíðu Wie með því að SMELLA HÉR: og komast má á facebook síðu Heiðu Guðna til þess að óska henni til hamingju með daginn hér að neðan:

Heiða Guðnadóttir (Innilega til hamingju með daginn!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Richard Burton, f. 11. október 1907 – d. febrúar 1974 (vann m.a. Opna breska 1939);  Fred Daly, f. 11. október 1911 – d. 18. nóvember 1990 (vann m.a. Opna breska 1947);  Greg Chalmers, 11. október 1973 (41 árs) – (vann m.a. Australian Open og Australian PGA Championship sama árið 2011); Kim Kouwabunpat, 11. október 1981 (33 ára); Cyril Bouniol, 11. október 1987 (27 ára) …… og …….

Golf 1 óskar afmæliskylfingunum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is