Ragnheiður Jónsdóttir | október. 8. 2013 | 13:00

Afmæliskylfingur dagins: Guðmundur Ágúst Kristjánsson – 8. október 2013

Afmæliskylfingur dagsins er  Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR.  Guðmundur Ágúst er fæddur 8. október 1992 og á því 21 árs afmæli í dag! Guðmundur Ágúst er núverandi Íslandsmeistari í holukeppni 2013.  Hann spilar golf í bandaríska háskólagolfinu, með golfliði Eeast Tennessee State University (ETSU).

Guðmundur Ágúst er annar af tveimur Íslendingum sem unnið hafa Duke of York keppnina, en það var árið 2010.

Andrew prins, Duke of York og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, 2010.

Andrew prins, Duke of York og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, 2010.

Komast má á facebooksíðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan:

Guðmundur Ágúst Kristjánsson (21 árs – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar eru:  Margaret Curtis, f. 8. október 1883- d. 24. desember 1965;  Thomas Dickson „Tommy“ Armour III, 8. október 1959 (54 ára);  Bernd Wiesberger, 8. október 1985 (28 ára);  Stacy Lee Bregman, 8. október 1986 (frá Suður-Afríku, spilar á LET – 27 ára); Mu Hu, 8. október 1989 (24 ára)

…… og ……..

Golf 1 óskar afmæliskylfingunum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.i