Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 26. 2015 | 07:30

Afmæliskylfingar dagsins: Sirrý og Viðar Örn – 26. júlí 2015

Það eru Sirrý Arnardóttir, móðir Haraldar Franklín Magnús, og Viðar Örn Ástvaldsson, sem eru afmæliskylfingar dagsins. Þau eru bæði fædd 26. júlí 1965 og eiga því 50 ára stórafmæli í dag!

Viðar Örn er í Golfklúbbi Bíldudals.  Komast má á facebook síðu afmæliskylfinganna til þess að óska þeim til hamingju með stórafmælin hér að neðan:

Sirrý Arnardóttir, GR. Mynd: Í einkaeigu

Sirrý Arnardóttir (Innilega til hamingju með stórafmælið!!!)

1-Vidar

 

Viðar Örn Ástvaldsson (Innilega til hamingju með merkisafmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Mick Jagger 26. júlí 1943 (72 ára); Guðmundur Arason, 26. júlí 1956 (59 ára); Þorsteinn Gíslason, 26. júlí 1947 (68 ára)Allen Doyle, 26. júlí 1948 (67 ára); Hulda Soffía Hermanns, GK, 26. júlí 1967 (48 ára); Flott Föt Flottari Verð 26. júlí 1969 (45 ára)Hannah Jun, 26. júlí 1985 (30 ára stórafmæli); Pedro Oriol, 26. júlí 1986 (29 ára); Andreas Hartø, 26. júlí 1988 (27 ára) …… og …… Sigridur Rosa Bjarnadottir og Karitas Jóna Tómasdóttir

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is