Ragnheiður Jónsdóttir | september. 4. 2022 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Raymond Floyd og Ásbjörn Björgvinsson – 4. september 2022

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir: Raymond Floyd og Ásbjörn Björgvinsson.

Raymond Floyd er fæddur 4. september 1942 og á því 80 ára merkisafmæli í dag. Floyd gerðist atvinnumaður í golfi 1961. Alls sigraði hann 63 sinnum á atvinnumannsferli sínum, þar af 22 sinnum á PGA Tour. Hann sigraði 4 sinnum í risamótum; öllum nema Opna breska, þar sem besti árangur hans var T-2 árangur 1978. Raymond var tvígiftur; fyrri konu sína Maríu Fraiettu Floyd, kvæntist Raymond 1973 og giftur hennar þar til hún dó 2012.  Þau eignuðust 3 börn. Raymond kvæntist að nýju 2021, Jennifer Thompson. Þau búa á Palm Beach í Flórída.

Ásbjörn Björgvinsson er fæddur 4. september 1957 og fagnar því 65 ára afmæli. Komast má á facebook síðu Ásbjörns  til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan

 

Ásbjörn Björgvinsson –  65 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!

Aðrir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:

Christian Þorkelsson, 4. september 1961 (61 árs);  Pétur Már Ólafsson, 4. september 1965 (57 ára); Laura Lyn Rosier-Heckaman 4. september 1968 (54 ára); Óska Skart (38 ára); Dawn Shockley, bandarískur nýliði á LET 2012 fædd 4. september 1986 (36 ára) … og …

Golf 1 óskar öllum, sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is