Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 8. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Raphaël Jacquelin – 8. maí 2018

Afmæliskylfingur dagsins er Raphaël Jacquelin. Raphaël fæddist 8. maí 1974 í Lyon í Frakklandi og á því 44 ára afmæli í dag! Raphaël gerðist atvinnumaður í golfi, fyrir 23 árum síðan 1995, eftir að verða franskur meistari. Raphaël hóf ferilinn á Áskorendamótaröðinni. Árið 1997 sigraði hann tvívegis og varð í 4. sæti á peningalistanum þannig að hann komst á Evrópumótaröðina 1998.

Það var samt ekki fyrr en í 238. mótinu sem hann tók þátt í á Evrópumótaröðinni að hann vann fyrsta sigur sinn. Það var fyrir 10 árum, árið 2005 á Open de Madrid. Hann vann í 2. sinn, 2007 á BMW Asian Open. Besti árangur hans á stigalista Evrópumótaraðarinnar (Order of Merit) var 20. sætið árið 2003.

Árið 2011 vann Raphaël síðan í 3. sinn á Evrópumótaröðinni, þ.e. á Sicilian Open (Opna sikileyska) átti 1 högg á Anthony Wall. Með þessum sigri komst Raphaël Jacquelin aftur á topp-100 á heimslistanum. Það var síðan 21. apríl 2013, sem Jacquelin vann 4. titil sinn á Evrópumótaröðinni þegar hann vann þá Felipe Aguilar frá Chile og Maximillian Kiefer í bráðabana á Open de España. S.l. 4 ár hefir Raphaël ekkert sigrað, en sigrar hans eru alls orðnir 7 á ferlinum.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Pat Meyers, 8. maí 1954 (64 ára); Jens Gud, 8. maí 1956 (62 ára); Soffia M Gustafsdottir, 8. maí 1960 (58 ára); Þuríður Guðrún Aradóttir, 8. maí 1963 (55 ára) Franklin Langham, 8. maí 1968 (50 ára STÓRAFMÆLI!!!); Andrew McArthur, 8. maí 1979 (39 ára); Andrès Romero, 8. maí 1981 (37 ára frá Argentínu); Anton Haig, 8. maí 1986 (32 ára Suður-Afríkani) Caroline Sarah Bon, 8. maí 1987 (31 árs frá Nýja-Sjálandi); Handalína Vefnaðarvöruverslun og Sportlíf Í Glæsibæ.

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is