Ragnheiður Jónsdóttir | október. 31. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Mark Wilson og Krisztina Batta – 31. október 2014

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir: Mark Wilson og Krisztina Batta. Mark Wilson er fæddur 31. október 1974 og á því 40 ára stórafmæli í dag í dag!!! Wilson hefir sigrað í 5 PGA Tour mótum síðast 22. janúar 2012 á Humana Challenge.

Mark Wilson

Mark Wilson

Krisztina Batta er tvöfaldur ungverskur meistari áhugamanna í golfi, fædd 31. október 1968 og er hún því 46 ára í dag.  Sjá má eldra viðtal Golf 1 við Krisztinu með því að SMELLA HÉR: Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins Krizstinu hér að neðan til þess að óska henni til hamingju með daginn:

Krisztina Batta  (46 ára – Boldog születésnapot!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Rives McBee, 31. október 1938 (76 ára stórafmæli!!!);  Toru Nakamura (中村 通Nakamura Tōru 31. október 1950) (64 ára);  Mardan Mamat, 31. október 1967 frá Singapore (47 ára);  Jim Renner, 31. október 1983 (31 árs stórafmæli!!!) …… og ……

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is