Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 18. 2013 | 12:00

Afmæliskylfingar dagsins: Kolbrún Lilja, Ólafur Arnarson og Nick Faldo – 18. júlí 2013

Afmæliskylfingar dagsins eru Kolbrún Lilja og Ólafur Arnarson.  Kolbrún Lilja er fædd 18. júlí 1973 og á því 40 ára merkisafmæli. Ólafur er fæddur 18.júlí 1963 og á því 50 ára stórafmæli í dag!  Kolbrún Lilja og Ólafur eiga sama afmælisdag og ekki ómerkari kylfingur en Sir Nick Faldo, sem einmitt er þessa dagana að spóka sig í bresku fánalitunum á Muirfield, þar sem Opna breska risamótið hófst í morgun, en Faldo, sem einmitt sigraði eftirminnilega 1987 þar, tekur nú sem fyrr þátt í mótinu.

Komast má á facebook síðu afmæliskylfinganna til þess að óska þeim til hamingju með merkisafmælin hér að neðan:

Kolbrún Lilja (40 ára stórafmæli!!! – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Olafur Arnarson Varasíða Ekki-nota (50 ára stórafmæli!!! Innilega til hamingju með afmælið!!!)

 

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Jack Simpson f. 18. júlí 1858- d.30. nóvember 1895;  Sir Nick Faldo, 18. júlí 1957 (56 ára); Stephanie Sparks f.  18. júlí 1973 (40 stórára); Cydney Clanton, 18. júlí 1989 (24 ára) ….. og ……

Golf 1 óskar afmæliskylfingunum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is