Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 7. 2022 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Jeppe Huldahl – 7. febrúar 2022

Afmæliskylfingur dagsins er Daninn Jeppe Huldahl. Hann fæddist 7. febrúar 1982 í Holsterbro í Danmörku og á því 40 ára stórafmæli í dag!

Jeppe býr í Kaupmannahöfn og gerðist atvinnumaður í golfi 2003 eftir að hann varð í 4. sæti á Q-school Evrópumótaraðarinnar. Hann hefir sigrað þrívegis á Nordic Golf Tour, 1 sinni á Áskorendamótaröð Evrópu og 1 sinni á Evróputúrnum.

Huldahl á 2 börn, Vega og Auru.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Alda Demusdóttir, 7. febrúar 1948 (74 ára); Ragnheiður Kristjánsdóttir, 7. febrúar 1968 (54 ára); Geir Kristinn Aðalsteinsson, 7. febrúar 1975 (47 ára); Ólafur Hjörtur Ólafsson, GA, 7. febrúar 1979 (43 ára); Bjarni Kristjánsson, 7. febrúar 1980 (42 ára); Jeppe Huldahl, 7. febrúar 1982 (40 ára); Ellen Kristjánsdóttir, GL, 7. febrúar 1984 (38 ára); Holly Clyburn, 7. febrúar 1991 (31 árs); Anna Björnsdottir … og …

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is