Hlynur Bergsson, GKG. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 23. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Hlynur Bergsson – 23. október 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Hlynur Bergsson, GKG.  Hlynur er fæddur 23. október 1998 og er því 17 ára í dag. Hlynur er Íslandsmeistari pilta í höggleik 2015. Hann tók m.a. þátt í Duke of York mótinu nú í ár og landaði 25. sætinu, sem er góður árangur. Komast má á facebook síðu Hlyns hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með afmælið

1-a-Hlynur
Hlynur Bergsson
23. október 1998 (17 ára – Innilega til hamingju með afmælið!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Harvey Morrison Penick, f. 23. október 1904 – d. 2. apríl 1995; Chi Chi Rodriguez, 23. október 1935 (80 ára); Sigrun G Henriksen; 23. október 1961 (54 ára); James Evangelo Nitties, 23. október 1982 (33 ára);  Michael Sim, 23. október 1984 (31 árs); Samúel og Friðrik Gunnarssynir, GÓ og GA, 23. október 1989  (26 ára); Óðinn Þór Ríkharðsson, 23. október 1997 (18 ára); Megan Khang, 23. október 1997 (18 ára – spilar á LPGA)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.