Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 20. 2016 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Henning Darri Þórðarson, Sophie Sandolo og Þorleifur Gestsson – 20. júlí 2016

Afmæliskylfingar dagsins eru þrír Þorleifur Gestsson, ítalski kylfingurinn Sophie Sandolo og Henning Darri Þórðarson.

Þorleifur er fæddur 20. júlí 1966 og á því 50 ára merkisafmæli. Hann er í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar.

Sophie Sandolo þekkt fyrir kynþokkafullar golfmyndir sínar.

Sophie Sandolo þekkt fyrir kynþokkafullar golfmyndir sínar.

Sophie Sandolo hefir spilað á LET en spilar núorðið aðallega á LET Access, þ.e.a.s 2. deildinni. Hún er fædd 20. júlí 1976 og á því 40 ára stórafmæli í dag.

Henning Darri er fæddur 20. júlí 1998 og er því 18 ára í dag!!! Henning Darri er í Golfklúbbi Keilis í Hafnarfirði (GK).

Henning Darri Þórðarson, GK. Mynd: Golf 1

Henning Darri Þórðarson, GK. Mynd: Golf 1

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Fred „Butch“ Baird 20. júlí 1936 (80 ára STÓRAFMÆLI!!!); Betty Burfeindt, 20. júlí 1945 sigurvegari LPGA Championship (71 árs);; Aslaug Fridriksdottir, 20. júlí 1968 (48 ára)Thomas Cregg Scherrer, 20. júlí 1970 (46 ára); James Bongani Kamte, 20. júlí 1982 (34 ára); Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir (32 ára); Baldur Friðberg Björnsson, 20. júlí 1990 (26 ára ); Birgitta R Birgis; Ultra-Mega Technobandið Stefán (25 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is