Ragnheiður Jónsdóttir | október. 11. 2013 | 17:30

Afmæliskylfingar dagsins: Heiða Guðna og Michelle Wie – 11. október 2013

Afmæliskylfingar dagsins eru Heiða Guðnadóttir og Michelle Wie. Báðar eru þær jafngamlar fæddar sama dag og sama ár 11. október 1989 og því báðar 23 ára í dag. Heiða er klúbbmeistari GKJ 2012 og Michelle Wie spilar á LPGA og hefir átt fremur erfitt keppnistímabil 2013.

Komast má á heimasíðu Wie með því að SMELLA HÉR: og komast má á facebook síðu Heiðu Guðna til þess að óska henni til hamingju með daginn hér að neðan:

Heiða Guðnadóttir (Innilega til hamingju með daginn!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Richard Burton, f. 11. október 1907 – d. febrúar 1974 (vann m.a. Opna breska 1939);  Fred Daly, f. 11. október 1911 – d. 18. nóvember 1990 (vann m.a. Opna breska 1947);  Greg Chalmers, 11. október 1973 (40 ára stórafmæli!!!) – (vann m.a. Australian Open og Australian PGA Championship sama árið 2011); Kim Kouwabunpat, 11. október 1981 (32 ára) …… og …….

Golf 1 óskar afmæliskylfingunum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is