Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 29. 2022 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Guðrún Thors og Kirk Allan Triplett – 29. mars 2022

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir: Guðrún Thors og Kirk Allan Triplett.

Guðrún Thors er fædd 29. mars 1972 og á því 50 ára stórafmæli í dag. Komast má á facebook síðu hennar til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan

Guðrún Thors – Innilega til hamingju með 50 ára stórafmælið!!!

Kirk Allan Triplett

Kirk Allan Triplett er fæddur 29. mars 1962 og fagnar því 60 ára merkisafmæli í dag. Triplett sigraði 17 sinnum á atvinnumannsferli sínum, þar af m.a. 3 sinnum á PGA Tour og 8 sinnum á PGA Champions. Árið 2009 missti Triplett kortið sitt á PGA Tour þegar hann náði ekki að vera meðal 150 efstu á peningalistanum. Hann spilaði því á Nationwide Tour 2010-2011 og er enn til dagsins í dag elsti kylfingur til að vinna í 2. deildinni, en hann var 49 ára þegar hann sigraði á News Sentinel Open, á Nationawide Tour, árið 2011.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Ernest Joseph (E. J.) „Dutch“ Harrison f. 29. mars 1910 – 19. júní 1982; Toggi Bjöss, 29. mars 1944 (78 ára); Sue Fogleman, 29. mars 1956 (66 árs) spilaði á LPGA; Gunnar Páll Þórisson, 29. mars 1961 (61 árs); Kirk Allan Triplett, 29. mars 1962 (60 ára); Lori Atsedes, 29. mars 1964 (58 ára); Ingimar Kr. Jónsson, 29. mars 1970 (52 ára) Gudrun Þórs, 29. mars 1972 (50 ára), Gerina Piller, 29. mars 1985 (37 ára) …. og ….

Golf 1 óskar öllum kylfingum, sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is