Ragnheiður Jónsdóttir | september. 5. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Gressi, Ingvar og Alexa – 5. september 2015

Það eru Gressi Agnars, Ingvar Karl Hermannsson og Alexa Stirling Fraser, sem eru afmæliskylfingar dagsins. Gressi eða Grétar, er fæddur 5. september 1972 og á því 43 ára afmæli í dag!!! Ingvar Karl er fæddur 5. september 1982 og á 33 árs afmæli í dag!!!

Eiginkona Grétars er Hilda Ólafsdóttir og þau eiga tvo syni Dag Óla og Atla Má, en Atli Már er Íslandsmeistari í holukeppni í strákaflokki, árið 2012. Grétar er í GK og Ingvar Karl GA.

Komast má á facebook síðu afmæliskylfinganna til þess að óska þeim til hamingju með merkisafmælin hér að neðan:

1-a-ingvar

Ingvar Karl Hermannsson (33 ára)

1-a-gressi

Gressi Agnars (43 ára)

Þriðji afmæliskylfingur dagsins er Alexa Stirling Fraser. Hún var fædd 5. september 1897 og hefði orðið 118 ára í dag hefði hún lifað, en Alexa dó 15. apríl 1977. Sjá má nýlega umfjöllun Golf 1 um Alexu Stirling Fraser í greinaflokknum kylfingar 19. aldar með því að SMELLA HÉR;

Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru: Thomas Charles Pernice Jr., 5. september 1957 (58 ára) …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingunum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is

Sjá má uppskrift af hjartaafmælisbrauðtertu með því að SMELLA HÉR: