Afmæliskylfingar dagsins: Gísli Sveinbergs og Þröstur Kára – 31. ágúst 2015
Það eru Gísli Sveinbergsson, GK og Þröstur Kárason sem eru afmæliskylfingar dagsins á Golf 1. Gísli er fæddur 31. ágúst 1997 og er því 18 ára í dag. Gísli er kunnari en frá þurfi að segja; afrekskylfingur úr Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði, í afreksóp völdum af landsliðsþjálfaranum okkar, Úlfari Jónssyni og nýbúinn að standa sig frábærlega í Jacques Leglise Trophy.
Þröstur Kárason er fæddur 31. ágúst 1995 og á því 20 ára stórafmæli í dag. Hann er í GSS.
Komast má á facebook síðu afmæliskylfinganna til þess að óska þeim til hamingju með afmælið hér að neðan:
Gisli Sveinbergsson (18 ára – Innilega til hamingju með daginn!)
Þröstur Kárason (20 ára – Innilega til hamingju með stórafmælið!)
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: The Hon. Michael Scott, 31. ágúst 1878 – 9. janúar 1959; Isao Aoki, 31. ágúst 1942 (73 ára); Elías Kristjánsson, GSG, 31. ágúst 1954 (61 árs); Ása Ólafsdóttir, 31. ágúst 1952 (53 ára) Snæbjörn Guðni Valtýsson, GS, 31. ágúst 1958 (57 ára); Ólafur Hafsteinsson, GR, 31. ágúst 1961 (54 ára); Odile Roux, 31. ágúst 1961 (Spilaði á LET – 54 ára); Pádraig Harrington, 31. ágúst 1971 (44 ára); Kambaröst Su Stöðvarfirði 31. ágúst 1977 (38 ára); Charl Schwartzel, 31. ágúst 1984 (31 árs); Sun Ju Ahn 31. ágúst 1987 (28 ára) ….. og ……
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
Uppskrift að afmælistertu:
3 egg
3 msk heitt vatn
150 g sykur
2 msk vanillusykur
200 g hveiti
2 tsk matarsódi
300 g rjómaostur
300 ml rjómi
4 msk púðursykur
500 g jarðaber
Smjör fyrir formið
Leiðbeiningar
Egg slegin með vatni í 2 mín. Sykur og vanillusykur blandaður saman við eftir 1 mín og síðan er allt saman slegið í 3 mínútur til viðbótar (samtals 5 mín). Síðan er 200 g af hveiti sigtað með matarsóda og sett sman við. Deigið er sett í smurt 26 cm form .
Bakað í 25 mín við 170° hita. Losa strax úr forminu og látið kæla (hægt að gera þetta jafnvel 2 dögum fyrr. Skera frá harða hlutann eða a.m.k. þynna hann. (Það er líka hægt að kaupa bara tilbúinn kökubotn).
Rjómi þeyttur og rjómaostur settur saman við og púðursykur. Tertuhringur settur utan um botninn og fyllingin sett í. Jarðaberin sett ofan á. Kælt í a.m.k. 2 klst.
Ef vill þá má setja jarðaberjagljáa ofan á tertuna:
Uppskrift:
300 ml. af jarðaberjasafa
1,5 msk kartöflumjöl eða maízena
2 msk sykur
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024


