Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 15. 2020 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Ellý Erlingsdóttir og Árni Þór Freysteinsson – 15. janúar 2020

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir: Ellý Erlingsdóttir og Árni Þór Freysteinsson.

Árni Þór er fæddur 15. janúar 1966 og á því 54 ára afmæli í dag. Hann er Akureyringur sem býr í Hafnarfirði og er snjall kylfingur. Árni Þór er í Golfklúbbi Setbergs og er í sambandi með Sigriði Hyldahl Björnsdóttur. Komast má á facebook síðu stórafmæliskylfingsins til þess að óska Árna Þór til hamingju með afmælið hér að neðan:

Árni Þór Freysteinsson. Mynd: Í einkaeigu

Árni Þór Freysteinsson (Innilega til hamingju með afmælið!)

Ellý fæddist 15. janúar 1962. Ellý er í Golfklúbbnum Keili og þar að auki mikill FH-ingur. Hún er fyrrum bæjarfulltrúi í Hafnarfirði. Ellý er gift Emil Lárus Sigurðssyni, lækni og eiga þau 3 börn: Erling Daða, Guðrúnu og Kristján Gauta Emilsbörn. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Ellý til hamingju með afmælið hér að neðan:

Ellý Erlingsdóttir, GK. Mynd. Í einkaeigu

Ellý Erlingsdóttir (Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Howard Allen, 15. janúar 1949 (71 árs); Hraunkots Handverk (62 ára); Ted N Tryba, 15. janúar 1967 (53 ára); Einar Páll Tamimi, 15. janúar 1969 (51 árs); Sirry Hallgrimsdottir, 15. janúar 1971 (49 ára); Y.E. Yang (á kóreönsku: 양용은 ) 15. janúar 1972 (48 ára); og Will Strickler, 15. janúar 1986 (34 ára); Alyssa Ferrell, 15. janúar 1992 (28 ára) … og…. Þröstur Ingvarsson

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is