Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 29. 2014 | 18:44

Afmæliskylfingar dagsins: Aron Snær Júlíusson og K. Snæfells Kjartansson ———- 29. nóvember 2014

Afmæliskylfingar dagsins eru K. Snæfells Kjartansson og Aron Snær Júlíusson, GKG.  Aron Snær fæddist 29. nóvember 1996 og er því 18 ára í dag.

Aron Snær er m.a. stigameistari GSÍ 2013 í piltaflokki.  Eins tók hann þátt í Duke of York mótinu og sigraði m.a. í Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ,  árið 2012.

Sjá má viðtal Golf 1 við Aron Snæ með því að SMELLA HÉR: 

K. Snæfells Kjartansson er fæddur 29. nóvember 1954 og á því 60 ára merkisafmæli í dag.  Komast má á facebook síðu hans hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með daginn

K Snæfells Kjartansson (60 ára stórafmæli!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Santiago Luna, 29. nóvember 1962 (52 ára); Perry Parker, 29. nóvember 1964 (50 ára stórafmæli);  Guy Hill, 29. nóvember 1970 (44 ára);  Tonya Gill 29. nóvember 1970 (44 ára) og  Danny Chia, 29. nóvember 1972 (42 ára);  Ann-Kathrin Lindner, 29. nóvember 1987 (27 ára – spilar á LET)

….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is