
Afmæliskylfingur dagsins: Björg Traustadóttir – 29. maí 2015
Afmæliskylfingur dagsins er Björg Traustadóttir, í Golfklúbbi Ólafsfjarðar (GÓ). Björg á afmæli 29. maí 1965 og á því 50 ára stórafmæli í dag. Björg er núverandi klúbbmeistari Golfklúbbs Ólafsfjarðar (2014) og einnig klúbbmeistari klúbbsins 2011. Auk þess hefir hún oftar en ekki hlotið sleggjuverðlaunin í kvennamótum og stendur sig yfirleitt vel eða sigrar í opnum mótum. T.a.m. sigraði Björg í 1. flokki þ.e. forgjafarflokki 0-14 á Opna Lancôme mótinu 2012 á Hellu. Björg er í fimm orðum sagt: frábær kylfingur og góður félagi.

Björg Trausta, klúbbmeistari GÓ, afmæliskylfingur (t.v.) ásamt annarri golfskvísu Indu í GHD á góðri stund!
Björg er gift og á 3 börn. Sjá má viðtal Gofl 1 við afmæliskylfinginn og klúbbmeistara Ólafsfjarðar (Björgu) með því að SMELLA HÉR:
Komast má af facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér:
Björg Trausta (50 ára merkisafmæli – Innilega til hamingju með afmælið!!!)
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Richard C. Metz (29. maí 1908 – 5. maí 1993); Patrick Joseph Skerritt, f. 29. maí 1926 – d. 21. nóvember 2001; Ólöf Björk Björnsdóttir, 29. maí 1946 (69 ára), Guðfinna Sigurþórsdóttir, 29. maí 1946 (móðir Karenar Sævars og Sigurþórs Sævarssonar – Fyrsti golfmeistari Íslands í kvennaflokki, 1967. Eina konan í hópi stofnenda GS, 1964); Helix Lee, 29. maí 1987 (28 ára); Eyþór Ingi Gunnlaugsson, 29. maí 1989 (26 ára); Noh Seung-yul, 29. maí 1991 (24 ára) og Heather Cox
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024