Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 16. 2020 | 23:59

Adam Scott sigraði á Genesis

Það var ástralski kylfingurinn Adam Scott, sem sigraði á móti vikunnar á PGA Tour, The Genesis Invitational.

Sigurskor Scott var 11 undir pari, 273 högg (72 64 67 70). Sigurlaun Scott voru $1,674,000 (u.þ.b. 201 milljón íslenskra króna)

Hann átti 2 högg á þá, sem urðu í 2. sæti, bandarísku kylfingana Matt Kuchar og Scott Brown og Sung Kang frá S-Kóreu. Þeir sem uðu í 2. sæti léku samtals á 9 undir pair, 275 högg.

Sjá má lokastöðuna á The Genesis Invitational með því að SMELLA HÉR: 

Sjá má hápunkta 4. dags á The Genesis Invitational með því að SMELLA HÉR: