Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 23. 2014 | 07:00

Adam Scott réð kylfusvein Thorbjörn Olesen

Adam Scott hefir nú opinberlega skipt um kylfusvein eftir að Steve Williams tilkynnti að hann ætlaði að hætta sem kylfuberi.

Nýi kylfusveinn Scott heitir Mike Kerr og hefir áður verið á pokanum hjá  Ernie Els, Lee Westwood og Thorbirni Olesen.

Kerr var m.a. á pokanum hjá Scott á Australian PGA Championship og mun því verða á pokanum hjá nr. 3 á heimslistanum 2015.

„Ég er ánægður með að Mike hefir gengið að tilboði mínu og ég er þess fullviss að hann mun verða verðmætur hluti af liði mínu 2015 og áfram,“ sagði Scott m.a.

Þetta þýðir umtalsverða launahækkun fyrir Kerr en í ár vann Olesen sér inn litlu meira en $1 milljón á tveimur mótaröðum meðan Scott vann sér inn  o $4 milljónir bara á  PGA Tour.