Nökkvi Gunnarsson
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 1. 2014 | 19:00

Afmæliskylfingur dagisns: Nökkvi Gunnarsson – 1. ágúst 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Nökkvi Gunnarsson. Nökkvi er fæddur 1. ágúst 1976 og því 38 ára í dag. Nökkvi er í Nesklúbbnum, er útskrifaður PGA golfkennari klúbbsins og  Íslandsmeistari 35+, árið 2012.  Nökkvi sigraði þetta ár, þ.e. 2012 í mörgum opnum mótum, m.a. BYKO vormótinu á Nesinu, 1. maí mótinu á Hellu og 60 ára afmælismóti GHR.  Eins tók Nökkvi  þátt í mótum erlendis 2012; t.a.m. varð hann í 18. sæti ásamt bróður sínum, Steini Baugi, á sterku móti áhugamanna í Belgíu sem fram fór á Royal Waterloo golfvellinum, þ.e. 4Ball Club Trophy, í apríl 2012.

Í fyrra  þ.e. 2013 og eins í ár 2014 varði Nökkvi  titil sinn í BYKO vomótinu á Nesinu og 2013 spilaði Nökkvi m.a. Nesvöll  á glæsilegum 66 höggum á Úrvals-Útsýnarmótinu.

Í ár, 2014,  var eins Nökkvi á besta skorinu á Þjóðahátíðardagsmótinu og tekur nú á mánudaginn n.k. þátt í Einvíginu á Nesinu.

Sjá má  viðtal Golf 1 við Nökkva með því að SMELLA HÉR: 

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan:

Nökkvi Gunnarsson (38 ára)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Guðlaugur Gíslason, f. 1. ágúst 1908 – d. 6. mars 1992, forystumaður GV um árabil, faðir Jakobínu Guðlaugsdóttir og Jón Hauks Guðlaugssonar, kylfinga með meiru;  Lloyd Mangrum, f. 1. ágúst 1914 – d. 17. nóvember 1973; Kristoffer Broberg, 1. ágúst 1986 (28 ára)   …… og …….

Margrét Eir (42 ára!)

Thorvaldsen Bar (37 ára)
Mússa Faulk (46 ára)

Bergur Ve (31 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum innilega til hamingju með stórafmælið!

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!