Íslandsmeistararnir í höggleik 2014. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 28. 2014 | 22:30

Hvað er heitt og hvað afleitt?

Nú í sumar hefir verið í gangi  greinarflokkur hér á  Golf 1 sem ber heitið „Hvað er heitt og hvað afleitt?“, sem er í raun bein þýðing og stæling á sambærilegum greinaflokki hjá CBSsports.com, sem heitir þar „What´s hot and what not … on the PGA tour.“  Greinarflokkurinn verður í gangi allt þar til síðustu leikir á Íslandsbankaröðinni hafa verið leiknir fyrstu vikuna í september og hefur síðan aftur göngu sína á næsta sumri 2015, þegar mótaraðir okkar bestu hefja göngu sína, enda greinarröðinni ótrúlega vel tekið.

Á CBS er alltaf getið um 5 atriði (kylfinga, atburði, eitthvað innan golfheimsins), sem þykja hafa skarað fram úr í vikunni áður en greinin birtist og er þ.a.l. heitt og að sama skapi eitthvað sem var afleitt í vikunni þar á undan.

Í hinum íslenska greinaflokki er ekkert loforð gefið um fjölda þess sem er heitt eða afleitt að öðru leyti en því að alltaf er a.m.k. nefnt 1 atriði af hvoru og í mesta lagi 5 eins og á CBS.   Haldið er sömu röð og hjá CBS – það sem er nr. 1 er heitast og síðan volgnar niður listann.  Alveg eins með það sem er afleitt – það sem er frámunalega afleitt er í 1. sæti og síðan skánar eftir því sem fer niður listann.

Heitt/afleitt grein  birtist alltaft á mánudögum nú í sumar.

Hér fer níundi alíslenski „Hot“ listinn fyrir vikuhlutann 12. júlí.-28. júlí (Listinn gildir til mánudagsins 4. ágúst):

1. sæti Langheitust þessa vikuna eru nýkrýndir Íslandsmeistarar í höggleik á 5. móti Eimskipsamótaraðarinnar Birgir Leifur Hafþórsson og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.   Margfaldir Íslandsmeistarar og glæsileg bæði tvö! 

2. sæti Þátttakendurnir á European Young Masters: Fannar Ingi Steingrímsson, GHG; Henning Darri Þórðarson, GK; , Saga Traustadóttir, GR og Ólöf María Einarsdóttir, GHD.

3. sæti Öll umgjörð, skipulag og framkvæmd Íslandsmótsins í höggleik.  Þetta var frábært Íslandsmót í alla staði og vel lukkað hjá heitum afmæliskgolfklúbbi Garðarbæjar og Kópavogs og klúbbnum til mikils sóma!

4. sæti  Ragnar Már Garðarsson, GKG – Heitt að fara holu í höggi í fyrsta sinn á Íslandsmóti!

5. sæti Heitir þeir sem fóru holu í höggi í s.l. viku m.a. Birkir Orri Viðarsson, 13 ára strákur úr GS og Sigurður Þorkelsson úr GS.

 

 Það sem er afleitt er eftirfarandi: (Listinn tekur til vikuhlutans  22.-28. júlí)

1.-4. Allt hernaðarbrölt úti í heimi. ( – Reyndar er þetta algilt og ofangreind tímamörk taka ekki til þess heldur er allt hernaðarbrölt afleitt alltaf, en e.t.v. sérstaklega  m.t.t. síðustu viku þegar sést hvernig púðurtunnan í Ísrael getur sprungið við morð á 3 einstaklingum) Það hefir haft í för með sér heilt stríð og yfir 1000 fallnir í stríði Ísrael við Hamas og margfalt fleiri særðir. Meðan við leikum okkur í golfi hér á Íslandi er fjöldi fólks að deyja og harmleikurinn ósegjanlegur.  Litlu krakkarnir á Gaza spyrja hvenær þau geti farið að leika sér? …. og eru síðan skotnir ef þau leika sér á röngum stöðum. Þetta er svo hræðilegt að afleitt er allt of veikt orð, en afleitt í þessu sambandi er að allir geti ekki leikið sér og spilað golf eins og við hér á Íslandi.

5. Að forsetinn hafi ekki komist í gegnum niðurskurð á Íslandsmótinu í höggleik.   Afleitt!!! Þetta sýnir bara hið gamalkveðna á við í dag sem áður að æfingin skapar meistarann.