Henning Darri Þórðarson, GK. Mynd: Golf 1 Afmæliskylfingur dagsins: Henning Darri Þórðarson – 20. júlí 2014
Afmæliskylfingur dagsins er Henning Darri Þórðarson. Henning Darri er fæddur 20. júlí 1998 og er því 16 ára í dag!!! Henning Darri er í Golfklúbbi Keilis í Hafnarfirði (GK). Hann er nú við keppni á 4. móti Íslandsbankamótaraðarinnar á Strandarvelli á Hellu.
Henning Darri sigraði á 1. maí mótinu á Hellu 2012 og spilaði það ár á Unglingamótaröð Arion banka, þar sem hann varð í 1. sæti á 1. mótinu upp á Skaga á glæsiskori 2 undir pari, samtals 142 höggum (72 70), sem var næstbesta skorið í keppninni allri!
En Henning Darri lét ekki þar við sitja – hann vann líka í flokki 14 ára og yngri á Þverárvelli á Hellishólum þar sem 2. mótið fór fram á Unglingamótaröðinni; hann varð í 4. sæti á 3. mótinu á Korpunni og Henning Darri varð síðan Íslandsmeistari í höggleiki í strákaflokki 2012.
Henning Darri Þórðarson, GK, Íslandsmeistari í höggleik í strákaflokki 2012.
Henning Darri varð síðan í 3. sæti á Íslandsmótinu í holukeppni í strákaflokki 2012 þ.e. 5. mótinu:
Strákaflokkur 2012. Henning Darri (t.h.)
Á 6. og síðasta móti Unglingamótaraðarinnar 2012 varð Henning Darri síðan í 6. sæti.
Henning Darri varð Íslandsmeistari með A-sveit Keilis á Jaðarsvelli 2012:
Loks mætti geta þess að árið 2012 hlaut Henning Darri Framfarabikar GK.
Golf 1 tók viðtal við Henning Darra sem sjá má með því að SMELLA HÉR:
Í fyrra, 2013 spilaði Henning Darri á Íslandsbankamótaröðinni og varð í sigursæti á 1. mótinu í Þorlákshöfn, þar sem Henning Darri varð í 2.-4. sætinu:
Henning Darri 2. f.v. Mynd: Golf 1
Henning Darri varð síðan í 8. sæti á 2. mótinu, sem fram fór á Hellu og á 3. mótinu á Leirdalsvelli, sem var Íslandsmótið í holukeppni komst Henning Darri í 8 manna úrslit en tapaði þar fyrir Íslandsmeistaranum Gísla Sveinbergssyni, en gaf sig ekki baráttulaust, en leikur þeirra fór á 21. holu! Á 6. móti Íslandsbankamótaraðarinnar í fyrra varð Henning Darri síðan Íslandsmeistari í höggleik!
Í desember 2013 hlaut Henning Darri heiðursviðurkenninguna „Bjartasta von GK“.
Í ár, í apríl 2014 sigraði Henning Darri ásamt Benedikt Harðarsyni í Páskapúttmóti Hraunkots.
Síðan hefir Henning Darri aftur leikið á Íslandsbankamótaröðinn. Hann , sigraði á 1. mótinu á Garðavelli og á 2. mótinu á Hlíðarvelli í Mosfellsbæ, en hætti keppni á 3. mótinu; Íslandsmótinu í holukeppni.
Henning Darri var síðan í íslenska piltalandsliðinu sem varð í 11. sæti á EM piltalandsliða, ekki hvað síst vegna góðrar frammistöðu Hennings Darra. Mótið fór fram 8.-12. júlí 2014 á Bogstad vellinum, í Osló, Noregi,
Það er vonandi að Henning Darra gangi sem allra best á afmælisdaginn á Hellu!!!
INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ HENNING DARRI!!! ![]()
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Fred „Butch“ Baird 20. júlí 1936 (78 ára); Betty Burfeindt, 20. júlí 1945 sigurvegari LPGA Championship (69 ára); Thomas Cregg Scherrer, 20. júlí 1970 (44 ára); Sophie Sandolo 20. júlí 1976 (38 ára); James Bongani Kamte, 20. júlí 1982 (32 ára)
…… og ……..
Þórleifur Gestsson (48 ára)
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024






