NK: Frábær þátttaka á styrktarmóti Ólafs Björns
Styrktarmót fyrir Ólaf Björn Loftsson, atvinnukylfing og félaga í Nesklúbbnum var haldið á Nesvellinum í gær, 16. júlí 2014. Tæplega 190 kylfingar og velunnarar Ólafs mættu og lögðu sitt af mörkum fyrir komandi átök Ólafs, en hann stefnir á úrtökumót fyrir evrópsku og bandarísku mótaraðirnar í haust. Í mótinu í dag var leikið eftir bæði punkta- og höggleiksfyrirkomulagi og veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í báðum flokkum ásamt nándarverðlaunum. Í lok kvölds lagði fjöldi fólks leið sína út á Nesvöll í glæsilega verðlaunaafhendingu þar sem einnig var dregið úr fjölda skorkorta.
Ólafur Björn vill þakka öllum þeim sem lögðu leið sína út á Nesvöll í dag ásamt þeim fjölmörgu styrkaraðilum sem gerðu mótið jafn veglegt og flott og það var.
Helstu úrslit í mótinu urðu eftirfarandi:
Nándarverðlaun:
1. braut: Gísli Birgisson – 57cm frá holu
2. braut: Skúli Arnarsson – 2,30m frá holu
5. braut: Jónatan Jónatansson – 1,44m frá holu
8. braut: Þórarinn Gunnar Birgisson – 0cm
Punktakeppni:
1. sæti: Friðrik Þór Sigmarsson – 23 punktar
2. sæti: Þórarinn Gunnar Birgisson – 23 punktar
3. sæti: Einar Þór Gunnlaugsson – 22 punktar
Höggleikur:
1. sæti: Þórarinn Gunnar Birgisson – 32 högg
2. sæti: Einar Þór Gunnlaugsson – 34 högg
3. sæti: Guðmundur Örn Árnason – 35 högg
Helstu styrktaraðilar mótsins voru:
Nesklúbburinn, Icelandair, Flufélag Íslands, Eirberg, Golfklúbbur Reykjavíkur, Golfkúbbur Kópavogs og Garðabæjar, Golfkúbburinn Keilir, Ölgerðin, VOX Reykjavík, Hótel Natura.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
