Hvað er heitt og hvað afleitt?
Nú í sumar hefir verið í gangi greinarflokkur hér á Golf 1 sem ber heitið „Hvað er heitt og hvað afleitt?“, sem er í raun bein þýðing og stæling á sambærilegum greinaflokki hjá CBSsports.com, sem heitir þar „What´s hot and what not … on the PGA tour.“ Greinarflokkurinn verður í gangi allt þar til síðustu leikir á Íslandsbankaröðinni hafa verið leiknir fyrstu vikuna í september og hefir síðan aftur göngu sína á næsta sumri 2015, þegar mótaraðir okkar bestu hefja göngu sína enda greinarröðinni ótrúlega vel tekið.
Á CBS er alltaf getið um 5 atriði (kylfinga, atburði, eitthvað innan golfheimsins), sem þykja hafa skarað fram úr í vikunni áður en greinin birtist og er þ.a.l. heitt og að sama skapi eitthvað sem var afleitt í vikunni þar á undan.
Í hinum íslenska greinaflokki er ekkert loforð gefið um fjölda þess sem er heitt eða afleitt að öðru leyti en því að alltaf er a.m.k. nefnt 1 atriði af hvoru og í mesta lagi 5 eins og á CBS. Haldið er sömu röð og hjá CBS – það sem er nr. 1 er heitast og síðan volgnar niður listann. Alveg eins með það sem er afleitt – það sem er frámunalega afleitt er í 1. sæti og síðan skánar eftir því sem fer niður listann.
Heitt/afleitt grein birtist alltaft á mánudögum nú í sumar.
Hér fer sjöundii alíslenski „Hot“ listinn fyrir vikuhlutann 8. júlí.-14. júlí (Listinn gildir til mánudagsins 21. júlí):
1. Heitasti kylfingurinn þessa vikuna er Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, en hún stóð sig langbest af stelpunum okkar á EM kvennalandsliða, sem fram fór í Ljubliana, Slóveniu !!!
2. Ragnhildur Sigurðardóttir. Hún varð klúbbmeistari kvenna í stærsta golfklúbbi á Íslandi, GR, í 18. skipti!!! Engin spurning að Ragga Sig er einn besti kvenkylfingur Íslands, sjóðandi heit og þar að auki einn albesti golfkennarinn okkar!
3. Stákarnir okkar á EM piltalandsliða. Frábærir allir sem einn. Að öðrum ólöstuðum mætti e.t.v. taka Henning Darra Þórðarson í GK, fram en hann tryggði piltunum okkar 11. sætið á EM, með fugli á 18. í síðasta holukeppnisleiknum – en 11. sætið á EM var besti árangur af EM-keppnunum 3 sem Íslendingar tóku þátt í, í s.l. viku.
4. Þórður Rafn Gissurarson, fyrir að komast í gegnum niðurskurð og ná 35. sætinu í Praforst Pro Golf Tour Fulda mótinu, í Fulda í Þýskalandi. Það er heitt!
5. Klúbbmeistarar og meistaramótsþátttakendur um allt land. Heitir!!!
Það sem er afleitt er eftirfarandi: (Listinn gildir til mánudagsins 21. júlí):
1, Veðrið – hefir, það sem af er sumars, í einu orði verið: Afleitt!!! Sérstaklega gerði það fjölmörgum keppendum seinnipart s.l. viku skráveifu í meistaramótunum hér á Höfuðborgarsvæðinu. Afleitt!!!
2. Allt hernaðarbrölt úti í heimi.( – reyndar er þetta algilt og ofangreind tímamörk taka ekki til þess heldur er allt hernaðarbrölt afleitt alltaf, en e.t.v. sérstaklega í síðustu viku m.t.t. síðustu viku þegar sést hvernig púðurtunnan í Ísrael getur sprungið við morð á 3 einstaklingum) Það hefir haft í för með sér heilt stríð og 172 fallnir í stríði Ísrael við Hamas bara núna í s.l. viku. Af hverju getur fólk ekki bara slakað á? Í stað þess að drepa og slá hvert annað; slá í hvíta litla golfkúlu á grænum engjum, í faðmi fjölskyldu og vina… eins og við hér á Íslandi. Það er hreint og beint afleitt að allir skuli ekki hafa það jafngott og við hér á litlu golfeyjunni okkar …. jafnvel þó veðrið sé afleitt hér stundum.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
