Klúbbmeistarar GR 2014 Ragnhildur Sigurðardóttir og Stefán Þór Bogason. Mynd: GR
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 13. 2014 | 10:00

GR: Ragnhildur og Stefán Þór klúbbmeistarar 2014 – Úrslit

Meistaramóti Golfklúbbs Reykjavíkur 2014 lauk í gær, 12. júlí 2014. Alls tóku 526 félagsmenn þátt í mótinu þetta árið. Mótið hófst sunnudaginn 6. júlí. Hjá þeim flokkum sem spiluðu þrjá daga var veðrið með besta móti. Sjá úrslitafrétt Golf1.is  úr 3. daga Meistaramóti GR með því að SMELLA HÉR: 

Aftur á móti verður ekki sama sagt um um þá flokka sem hófu leik miðvikudaginn 9. júlí. Rok og mikil úrkoma var þá daga og frekar erfiðar aðstæður hjá þeim flokkum. Mikil barátta var í öllum flokkum og mikil spenna á lokadeginum.

Klúbbmeistarar GR 2014 eru þau Stefán Þór Bogason og Ragnhildur Sigurðardóttir. Stefán Þór er að vinna sinn fyrsta titil sem klúbbmeistari GR en Ragnhildur hefur orðið klúbbmeistari alls 18 sinnum og er að spila sitt 30 meistaramót. Stefán Þór spilaði hringina fjóra  á 288 höggum. Ragnhildur spilaði sína fjóra hringi á 319 höggum – svo sannarlega glæsileg spilamennska!

Golf 1 óskar vinningshöfum innilega til hamingju með glæsilegan árangur!!!

omar-verðlh12Hér að neðan má sjá helstu úrslit í öllum flokkum í Meistaramóti GR 2014.
Konur 70 ára og eldri 
1.sæti    Magdalena M Kjartansdóttir 312
2.sæti     Guðrún Magge Magnúsdóttir 315

Karlar 70 ára og eldri
1.sæti    Haukur Örn Björnsson 238
2.sæti    Haukur V.Guðmundsson 254
3.sæti    Ólafur Z Ólafsson 256

Konur 50 ára forgj.20,5-40
1.sæti    Ingibjörg Halldórsdóttir 294
2.sæti    Birna Stefánsdóttir 298
3.sæti     Ingibjörg Þ. Sigurðardóttir 306

Karlar 55 ára forgj.15,5-36

1.sæti    Andrés Ásmundsson 269
2.sæti    Ágúst Ingi Jónsson 283
3.Sæti    Ómar Hugi Egilsson 286

Konur 50 ára forgj.0-20,4
1.sæti    Ásgerður Sverrisdóttir 252
2.sæti    Guðrún Garðars 253
3.sæti    Margrét Geirsdóttir 261

Karlar 55 ára forgj.0-15,4

1.Sæti    Einar L.Þórisson 222 – eftir bráðabana
2.Sæti    Sæmundur Pálsson 222
3.sæti    Sigurður Hafsteinsson 226

5.flokkur Karla
1.sæti    Bragi Már Bragason 322
2.sæti    Hjálmar Þ.Baldursson 335

4.flokkur kvenna
1.sæti     Svanlaug Inga Skúladóttir 334
2.sæti    Ragnhildur Ágústsdóttir 345
3.Sæti    Margrét Þorvaldsdóttir 346

4.flokkur Karla

1.sæti    Júlíus Ingi Jónsson 279
2.sæti    Daði Kolbeinsson 280
3.sæti    Karl Þráinsson 282

3.flokkur kvenna
1.sæti    Freyja Önundardóttir 291
2.sæti    Hafdís Engilbertsdóttir 304
2.sæti    Sigrún Ólafsdóttir 305

3.flokkur karla
1.sæti     Sigurður Gunnar Sveinsson 271 – eftir bráðabana
2.sæti    Atli Þór Þorvaldsson 271
3.sæti     Ragnar Árnason 275

2.flokkur kvenna
1.sæti    Linda Björk Bergsveinsdóttir 365
2.sæti    Harpa Helgadóttir 379
3.sæti    Oddný Sigsteinsdóttir 381

2.flokkur karla
1.sæti    Valgeir Egill Ómarsson 336
2.sæti    Kristján Þór Sveinsson 337
3.sæti    Ríkharður Daðason 338

1.flokkur kvenna

1.sæti    Helga Þorvaldsdóttir 354
2.sæti    Guðrún Axelsdóttir 372
3.sæti    Ásta Óskarsdóttir 378  – eftir bráðabana

1.flokkur karla

1.sæti    Sigtryggur Birkir Jónatansson 313
2.sæti    Grímur Þórisson 315
3.sæti    Jóhann Sigurðsson 317

Meistaraflokkur kvenna
1.sæti    Ragnhildur Sigurðardóttir 319
2.sæti    Halla Björk Ragnarsdóttir 320
3.sæti    Saga Traustadóttir 326

Meistaraflokkur karla

1.sæti    Stefán Þór Bogason 288
2.sæti    Haraldur Hilmar Heimisson 290
3.sæti    Stefán Már Stefánsson 293

Öll frekari úrslit úr Meistaramóti GR 2014 má finna hér.