Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 12. 2014 | 17:00

Íslenska karlalandsliðið á EM tapaði stórt fyrir Finnum – 5-0

Íslenska karlalandsliðið tapaði öllum leikjum sínum í dag fyrir liði heimamanna, Finna á EM.

Keppt er á Linna golfvellinum í Finnlandi,  sem er staðsettur um 100 km frá Helsinki rétt utan við bæinn, Hämeenlinna. Hægt er að nálgast ítarlegar upplýsingar um mótið og sker keppenda má finna með því að  SMELLA HÉR:

Leikirnir fóru á eftirfarandi máta:

Albert Eckhardt og Erik Myllymäki unnu Ragnar Má Garðarsson og Andra Þór Björnsson í fjórmenningnum 3&1

Linus Väisänen vann Gísla Sveinbergsson 4&3

Lauri Ruuska  vann Bjarka Pétursson 6&5

Miki Kuronen vann Guðmund Ágúst Kristjánsson 2&1

Kristian Kulokorpi vann Harald Franklín Magnús 6&4.