Nýju strákarnir á PGA Tour 2014 (efstu 25 af peningalista Web.com): Michael Putnam (25/25)
Efstu 25 af peningalista Web.com Tour 2013 hlutu kortin sín á PGA Tour, keppnistímabilið 2013-2014. Í dag verður kynntur sá síðasti af strákunum heppnu 25, þ.e. sá sem sigraði, þ.e. varð efstur á peningalistanum, varð í 1. sæti, keppnistímabilið 2013, en það er Michael Putnam.
Putnam tók þátt í Web.com Tour Finals eins og öllum efstu 25, af peningalista Web.com Tour, stendur til boða á Web.com Tour Finals, um bætta stöðu og sigraði aftur þ.e. varð í 1. sæti, tók alslemm og gat í raun ekkert gert annað en jafnað frábæran 1. sætis árangur sinn.
Michael Putnam fæddist í Tacoma, Washington-ríki, 1. júní 1983 og er því 31 árs.
Putnam var í Pepperdine háskóla og spilaði golf með golfliði skólans í 4 ár, þar til hann útskrifaðist með gráðu í viðskiptafræði árið 2005.
Hann hefir spilað á Nationawide (nú Web.com) Tour frá árinu 2006 þ.e. í 8 ár, með hléum þegar honum hefir gengið nógu vel til að krækja sér í kortið eftirsótta á PGA Tour. Hann átti 2, 2. sætis árangra þ.á.m. einn leik þar sem hann tapaði í bráðabana á Rheem Classic mótinu. Putnam varð í 17. sæti á peningalistanum og vann sér þar með fyrst inn kortið sitt á PGA Tour árið 2007. Hann varð það ár í 158. sæti á peningalistanum og spilaði því aftur á Nationwide Tour 2008. Hann spilaði þar, þart til árið 2010 þegar hann varð 24. á peningalistanum og fékk aftur kortið sitt á PGA Tour fyrir keppnistímabilið 2011. Aftur varð Putnam neðarlega á peningalistanum eða í 153. sæti og varð að spila aftur á Nationwide Tour til 2012 þegar nafninu á mótaröðinni var breytt í Web.com Tour. Á þeirri mótaröð vann hann þ.e. varð í 1. sæti peningalistans og er nú aftur á PGA Tour eftir að hafa verið valinn leikmaður ársins á Web.com.
Á 2013 keppnistímabilin spilaði Michael með bróður sinn Joel á pokanum. Yngri bróðir Michael, Andrew, var líka á túrnum, en hann varð í 49. sæti á peningalistanum.
Alls á Putnam að baki 3 sigra á PGA, einn á Nationwide Tour 2010 á Utah Open og síðan tvo árið 2013 á Web.com Tour í Mexico Championship og Mid-Atlantic Championship.
Besti árangur Putnam í risamóti er T-45 á Opna bandaríska 2011. Hann náði ekki niðurskurði í Opna breska 2007 en hefir ekki spilað í hinum tveimur risamótunum.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
