Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 8. 2014 | 12:00

Hvað var í sigurpoka Cabrera?

Angel Cabrera var með nokkrar nýjar kylfur í pokanum á  The Greenbrier Classic sem reyndust vel:

* Cabrera notaði Ping S55 7-járn m.a. þegar hann sló  175 yarda (160 metra) á  par-4 13. holu Old White TPC, og jók forystu sína.

* S.s. fram hefir komið hér á Golf 1 var Cabrera líka einn af 8 fulltrúum Ping á túrnum sem voru að prufukeyra G30 dræver PING í fyrsta sinn, með þessum líka flotta árangri.  Cabrera var í 11. sæti í drævlengd á 307.1 yördum (280.8 metrum) og var í 4. sæti í nákvæmni dræva, hitti 82,14% af brautum sínum.

Eftirfarandi var annars í sigurpoka Cabrera: 

Bolti: Titleist Pro V1x

Dræver: Ping G30 (Aldila Rogue 80X), 9°

3-tré: Ping G30, 13.5°

Járn (2): Ping i25; (3-PW): Ping S55

Fleygjárn: Ping Anser (54°); Ping Tour Gorge TS (60°)

Pútter: Ping Scottsdale TR Anser 2B