Frá Selsvelli á Flúðum einum uppáhaldsgolfvalla Jóhannesar á Íslandi.
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 7. 2014 | 15:00

GF: Hlynur Bergsson og Bergur Konráðsson sigruðu á Opna Golfdeginum

Laugardaginn s.l., 5. júlí 2014,  fór fram Texas scramble mót á Selsvelli, Golfdagurinn 2014. Keppendur voru rúmlega 60 talsins, leikinn var höggleikur með forgjöf.

Úrslit voru eftirfarandi:

1. sæti – Hlynur Bergsson og Bergur Konráðsson – 61 högg

2. sæti – Guðbjörg Elín og Bragi Þorsteinn – 64 högg

3. sæti – Elías Kristjánsson og Jórunn Lilja – 65 högg

4. sæti – Jón Karlsson og Einar Karl – 67 högg

5. sæti – Hergeir Elíasson og Anna Guðmundsdóttir – 68 högg

 

Næst holu:

2. hola – Jónas Ragnarsson, 1,41 m.

5. hola – Elías Kristjánsson, 12,20 m.

9. hola – Jón Snorrason, 1,98 m.

11. hola – Ragnar Sigurðarson, 3 m.

14. hola – Gunnar Karl Karlsson, 9,66 m.

 

Lengsta teighögg karla – Magnús Magnússon

Lengsta teighögg kvenna – Magnhildur Baldursdóttir

 

Mótanefnd GF þakkar keppendum fyrir góðan dag. Veður var þokkalegt framan af, en heldur svalt. Vindur var talsverður og þá mest eftir hádegið, en það kom ekki mikið að sök þar sem tré skýla flestum brautum vallarins.

Þeir verðlaunahafar sem ekki gátu verið viðstaddir afhendingu verðlauna sinna eru vinsamlegast beðnir um að vitja þeirra við tækifæri.