Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 5. 2014 | 21:45

LET: IK Kim leiðir e. 3. hring European Ladies Masters

Það er IK Kim sem búin er að koma sér í efsta sætið á ISPS HANDA European Ladies Masters.

Kim átti glæsihring upp á 63 högg á 3. keppnisdegi European Ladies Masters og er komin með góða 4 högga forystu á þá sem er í 2. sæti,  hina áströlsku 18 ára Minjee Lee, sem samtals er búin að spila á 10 undir pari.

Þriðja sætinu deila síðan forystukona fyrstu tvo dagana Sarah Kemp frá Ástralíu og hin bandaríska Amalía Lewis.   Báðar hafa þær leikið á samtals 9 undi pari, hvor.

Fimmta sætinu deila síðan þýska Solheim Cup stjarnan Caroline Masson ásamt hinni áströlsku Nikki Campbell, en athygli vekur góður árangur áströlsku stúlknanna í þessu móti.

Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag European Ladies Masters SMELLIÐ HÉR: