Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 26. 2014 | 11:30

Tiger finnst hann gamall

Tiger Woods virðist sáttur við að dýrðardagar hans þar sem hann réði lögum og lofum á golfvellinum séu liðnir.

Tiger, 38 ára, vann 14 risatitla á ferli sínum á árunum 1997-2008, en hefir síðan þá m.a. strögglað við meiðsli og afleiðingar af skipsbroti hjónabands síns, fyrir opnum tjöldum alheimspressunnar.

Á hápunkti ferils síns var hann fullur orku og næsta einráður nú finnst honum hann gamall.

„Mér finnst ég gamall“ sagði hann í viðtali s.l. þriðjudag. „Þessi kínverski krakki (Guan Tianlang) sem spilaði á Masters á síðasta ári (14 ára) fæddist eftir að ég vann mótið í fyrsta sinn og það er bara ekki svalt.“

„Það er svona sem framtíðin er; nýja kynslóðinn er hærri, þyngri og líkamlegri í betra formi- þessir háskólakrakkar eru allir sleggjur oft 1,88-m – 1.92 m á hæð. „

„Munurinn er að ég hef elst, ég get ekki spilað eins og ég gerði. Ég verð að treysta á aðra þætti, eins og strategíu og leikskipulag á golfvellinum. Gamli málshátturinn er að „með auknum aldri stígi menn í vitið“ og ég er svo sannarlega orðinn þolinmóðari. Að eiga tvö lítil börn hefir svo sannarlega kennt mér að vera þolinmóður og það hef ég tekið með mér á golfvöllinn.“

Tiger spilar nú aftur mun fyrr en við var búist eftir bakuppskurðinn, en það heldur ekki fyrr en eftir strangt endurhæfingarplan og breytingar í mataræði.

„Ég hef ekki æft eins mikið og ég vildi en ég er nógu góður til að spila og ég ætla að prófa.“