Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 25. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Hrafnkell Óskarsson – 25. júní 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Hrafnkell Óskarsson. Hrafnkell er fæddur 25. júní 1952 og á því 61 árs afmæli í dag!!! Hrafnkell er læknir með sérfræðileyfi í skurðlækningum frá Svíþjóð 1988. Hrafnkell er góður kylfingur, sem er í Golfklúbbi Kiðjabergs (GKB) og hefir m.a. verið sigursæll í opnum mótum, t.a.m. á viðmiðunarmótum LEK. Eins var hann einn þeirra sem þátt tók í Læknagolfi á Hvaleyrinni nú í ár aftur með góðum árangri.

Hrafnkell er kvæntur Þórhildi Sigtryggsdóttur, lækni og þau eiga dótturina Hrafnhildi og tvö barnabörn.

Komast má á facebooksíðu Hrafnkels til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan:

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Vance Veazey, 25. júní 1965 (49 ára);  Paul Affleck 25. júní 1966 (48 ára); David Park, 25. júní 1974 (40 ára stórafmæli!!!);  Hendrik Johannes „Hennie“ Otto, 25. júní 1976 (38 ára)

….. og ……

Sæþor Jensson (39 ára)

Brimnes Áhöfn (94 ára)

Ervin Szalai (50 ára stórafmæli – Innilega til hamingju með daginn!!!)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum innilega til hamingju með stórafmælið og öðrum kylfingum innilega til hamingju með daginn!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is